Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. desember 2025 15:03 Frá endurvinnslustöð Sorpu á Dalvegi í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Mikil breyting hefur verið gerð á opnunartíma Sorpu sem bæði opnar nú dyr sínar fyrr og lokar þeim síðar. Ekki er talið að breytingin feli í sér aukinn kostnað heldur raunar sparnað. Breytt vaktakerfi þýðir að starfsfólk vinnur færri helgar en áður. „
Gleðifréttir fyrir alla morgunhana og síðdegisflokkara!“ sagði í tilkynningu á vef Sorpu í vikunni. Héðan í frá verður opið í endurvinnslustöðvum við Sævarhöfða, Breiðhellu, Ánanaust, Jafnasel og Dalveg frá klukkan níu á morgnana og til sjö á kvöldin. Opnunartíminn verður óbreyttur í Mosfellsbæ. Gunnar Dofri Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu segir tvær ástæður fyrir breytingunum. „Bæði er það að okkar viðskiptavinir hafa kallað eftir því að geta nýtt endurvinnslustöðvar Sorpu fyrr á morgnana eða fyrr á daginn og þá sérstaklega um helgar. Og við erum bara að mæta því kalli,“ segir Gunnar Dofri. „Hinn þráðurinn í þessu er líka í rauninni betra vinnuumhverfi fyrir starfsfólkið okkar. Það sem við erum, við erum að gera er, erum að innleiða nýtt vaktakerfi. Og okkar fólk hefur fram að þessu unnið tvær af hverjum þremur helgum, sem að er mjög mikið helgarálag. En núna vinnur það bara eina af hverjum tveimur.“ Viðskiptavinir Sorpu eru margir hverjir vanir því að mæta í Sorpu við fyrri opnunartíma klukkan tólf á hádegi. Þá hefur myndast álagspunktur, sérstaklega um helgar, þegar flokkarar á öllum aldri í helgartiltekt er mætt í röðina. Gunnar Dofri á von á því að með breyttum opnunartíma heyri álagspunktar sögunni til. Eðlilegt væri að álykta sem svo að með því að opna fyrr og loka síðar þýddi aukinn kostnað fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sem reka Sorpu. Gunnar Dofri skilur pælinguna en það sé ekki raunin. Breytt mönnun komi þar til bjargar. „Við höfum í raun alltaf verið að keyra með jafn marga á hverjum tíma, en það sem við erum að gera núna, erum við, erum með færri á vakt þegar það er minna að gera, sem er svona í grunninn á, á virkum dögum og þá sérstaklega á veturna, en höfum þá möguleikann að kalla út frekar fólk á álagstímum, það er að segja á sumrin eða um helgar. Þannig að kostnaðurinn, það, við náum meira að segja sparnaði með þessu.“ Desember er mikill neyslumánuður í samfélaginu með tilheyrandi ferðum í Sorpu. Gunnar Dofri hvetur fólk til að mæta undirbúið á endurvinnslustöðvarnar. Ekki troða öllu í bílinn og hefja flokkun á stöðinni sjálfri. „Því betur sem þú ert undirbúinn þegar þú kemur, þeim mun fljótari ertu í gegn og þá líður öllum betur.“ Dósamóttakan í Ánanaustum og Breiðhellu verður héðan í frá opin alla daga frá klukkan 10 að morgni og til 18 en ekki 18:30 eins og var áður.
Sorpa Umhverfismál Neytendur Mest lesið Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf Gróði af verklokum réttlætti áhættu Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf