Viðskipti innlent

Sameiningartillaga samþykkt

Tillaga um sameiningu Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamsölunnar í Reykjavík var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á félagsfundi í MBF í gærkvöldi, en hún hafði áður verið samþykkt í MS. Guðbrandur Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa, verður væntanlega forstjóri nýja fyrirtækisins, sem skipt verður í sex svið. Framkvæmdastjórar verða yfir hverju sviði auk þriggja mjólkurbússtjóra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×