Viðskipti innlent

Telja efnahagslífið vel statt

Um 76 prósent forráðamanna íslenskra fyrirtækja telja aðstæður í efnahagslífinu almennt góðar. Sjö prósent forráðamanna íslenskra fyrirtækja telja aðstæður í efnahagslífinu slæmar. Þetta kemur fram í könnun IMG-Gallup fyrir fjármálaráðuneytið og Seðlabankann en könnunin var birt í vefriti fjármálaráðuneytisins í dag. 375 fyrirtæki voru í úrtakinu og var svarhlutfallið 77%. Könnunin var gerð á tímabilinu 8. febrúar til 3. mars. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×