Sport

Ísland yfir gegn Dönum

Ísland var 1 stigi yfir gegn Danmörku í Evrópukeppninni í körfubolta, 50-49 þegar tæpar 8 mínútur voru eftir að leik liðanna. Staðan var 48-47 fyrir Ísland að loknum 3. leikhluta en leikið er í Keflavík. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni. Ísland var yfir í hálfleik, 32-31, eftir að hafa verið sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 19-12. Danmörk komst hins vegar 11 stigum yfir áður en íslenska liðið réeti úr kútnum og komst aftur yfir. Logi Gunnarsson er stigahæstur í íslenska liðinu með 15 stig. Jón Arnór Stefánsson hefur fengið 3 villur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×