Sport

Red Auerbach á sjúkrahúsi

NordicPhotos/GettyImages
Körfuboltagoðsögnin Red Auerbach hefur verið fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús, en ekki hefur verið gefið upp hvað amar að honum. Auerbach er 87 ára gamall og hefur unnið fleiri NBA titla en nokkur annar þjálfari í sögu deildarinnar. Auerbach hefur verið heilsutæpur síðustu ár, en nú er ljóst að hann er nokkuð alvarlega staddur á sjúkrahúsi og fréttir herma að hann þurfi að gangast undir mikla aðgerð á næstu dögum. Hann er frægastur fyrir að hafa þjálfað lið Boston Celtics til níu meistaratitla um miðbik síðustu aldar og hefur starfað hjá Celtics í meira en hálfa öld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×