Sport

Shaq lét hnefana tala

Shaquille O´Neal, leikmaður Miami Heat, lét hnefana tala um helgina þegar hann var staddur í veislu í New York ef marka má fréttir úr New York Post í gær. Ölvaður maður er sagður hafa stjakað við konu hans í veislunni, með þeim afleiðingum að hann fékk íturvaxinn hnefa tröllsins í andlitið og stóð skiljanlega ekki upp aftur eftir það. Í kjölfarið fór allt upp í loft í veislunni og kalla þurfti á lögreglu til að skakka leikinn. "Ég veit ekki hvað hljóp í manninn, hann varð bara allt í einu vitlaus og hamraði manninn í gólfið," sagði einn sjónarvotta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×