Ísland úti í kuldanum 21. september 2005 00:01
Alþjóða knattspyrnusambandið og Knattspyrnusamband Evrópu samþykktu í gær að Skandinavíudeildin í knattspyrnu, eða Royal League, sem er samstarfsverkefni knattspyrnusambanda Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar, fái keppnisleyfi næstu fimm árin. Íslendingum hefur ekki verið boðið að vera með frekar en Finnum. "Það er ekki nokkur spurning að við myndum taka þátt í Royal League ef tækifæri gæfist. Íslensk lið sárvantar erlend verkefni yfir vetrartímann," sagði Guðmundur Árni Stefánsson, formaður knattspyrnudeildar FH, við Fréttablaðið. Skandinavíudeildinni var hleypt af stokkunum síðasta vetur þar sem tólf liðum frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð var skipt í þrjá riðla. Keppni hófst 11. nóvember og lauk með úrslitaleik 26. maí. FC Kaupmannahöfn sigraði IFK Gautaborg í úrslitaleiknum og fékk u.þ.b. 100 milljónir íslenskra króna í heildartekjur og því er eftir miklu fjármagni að slægjast enda forráðamenn liðanna í skýjunum með hvernig til tókst. Hvert lið fékk um tíu milljónir króna fyrir riðlakeppnina og svo bónus fyrir stig, útsláttarkeppni og úrslitaleik. Svo vel tókst til með Skandinavíudeildina að þessu sinni að löndin þrjú sem að henni stóðu ákváðu að halda samstarfinu áfram. Tekjur Skandinavíudeildarinnar byggjast á sjónvarpsrétti en að sögn Geirs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ, er um álitlegar upphæðir að ræða, eins og reyndar verðlaunaféð gefur til kynna, og ólíklegt að íslenskar sjónvarpsstöðvar hafi bolmagn til þess að greiða slíkt, sem er helsta skilyrði þess að íslenskt lið komist þarna inn."Þetta er erfitt viðureignar fyrir okkur en við höldum þessari umræðu vakandi. Finnar eru heldur ekki með í deildinni; þá langar mikið til að komast inn en hafa ekki haft erindi sem erfiði," sagði Geir, sem vildi ekki útiloka að íslenskt lið kæmist þarna að í framtíðinni. Birgitta Herade, starfsmaður danska knattspyrnusambandsins og talsmaður Royal League, sagði í samtali við Fréttablaðið að hún gæti ekki svarað því hvers vegna íslensku félagsliði væri ekki boðið að vera með. Forsvarsmenn knattspyrnusambandanna í Noregi, Danmörku og Svíþjóð þyrftu að svara því."Ég vil alls ekki útiloka neitt. Skandinavíudeildin gekk framar vonum síðasta vetur, hún stóð undir sér og gott betur og nú erum við að sníða helstu vankantana af til að gera hana ennþá skemmtilegri. Landfræðilega er mjög hentugt fyrir þessi þrjú lönd að vinna saman og þau hafa náð góðum árangri á Evrópumótunum í gegnum tíðina. Finnland vill líka vera með og einnig hefur frést af áhuga Eystrasaltslandanna," sagði Birgitta. Guðmundur Árni segir slæmt að setja á eins konar Norðurlandamót án þess að Ísland sé þar með. "Við myndum fagna öllum tilraunum KSÍ til að tryggja það að íslenskt lið væri þar inni."Það er deginum ljósara að algjör bylting yrði fyrir íslenska knattspyrnu að fá aðgang að Royal League en það virðist því miður aðeins vera fjarlægur draumur.
Íslenski boltinn Mest lesið Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hvað er hann að gera hér?“ Slot finnst sjaldnast gaman að horfa á enska boltann „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Borgaði meira en 28 milljónir króna fyrir Ólympíugallann hennar Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Hefur aldrei fengið hausverk á ævinni Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Dagskráin í dag: B-deildarslagur í Birmingham Skellur fyrir bankabók HSÍ Allir sem hylji munninn verði reknir út af „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Dramatík hjá gömlu konunni í Rómarborg Gríðarjafn pakki eftir grindvískan sigur Uppgjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðarenda FH-ingar fögnuðu sigri á Meistaramótinu Losnar um pressu á Sverrislausan Benítez Stelpur með fötlun unnu í opnum flokki Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Arsenal vann hornspyrnukonsert Dramatík hjá Hákoni Sögulega slakur árangur FCK Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Sjá meira