Sport

Logi heitur með Bayeruth

Landsliðsbakvörðurinn Logi Gunnarsson byrjar vel með sínu nýja liði Bayreuth í þýsku 2. deildinni en hann átti mjög góðan leik í æfingaleik gegn TSV Troester Breitenguessbach en þetta var fyrsti leikur hans fyrir félagið. Logi samdi við liðið á dögunum eftir að hafa spilað undanfarin ár með Giessen 46ers í þýsku úrvalsdeildinni. TSV Troester Breitenguessbach er í suðurdeild 2. deildar þýsku Bundesligunnar líkt og BBC Bayreuth liðið. Logi skoraði 25 stig og setti niður sjö af ellefu þriggja stiga skotum sínum í leiknum og Bayreuth vann leikinn, 90-79. Fyrsti leikur Bayreuth í deildinni er á laugardaginn kemur á móti Stuttgart á útivelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×