Sport

Losuðu sig við Kanana

Þó svo að keppni sé ekki hafin í úrvalsdeild karla í körfubolta hafa tvö lið þegar sent sinn bandaríska leikmann heim. Fjölnismenn sendu heim Jason Clark sem hafði til að mynda leikið með liðinu í Reykjavíkurmótinu og þá ákváðu Haukar að segja upp samningi Richard Jeter en hann fór með liðinu í æfingaferð til Serbíu. Greinilegt er að liðin töldu leikmennina ekki nýtast sem skildi og munu því sjálfsagt leitast eftir eftirmönnum þeirra sem allra fyrst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×