Lúðvík heldur 1. sætinu 5. nóvember 2005 20:36
Það voru ekki bara sjálfstæðismenn í Reykjavík sem kusu menn á lista fyrir sveitarstjórnarkosningar í dag. Samfylkingarmenn í Hafnarfirði og á Akureyri gengu einnig að kjörborðinu. Um 2000 manns eru á kjörskrá Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Öruggt er talið að Lúðvík Geirsson bæjarstjóri muni áfram halda fyrsta sætinu og hann tók glaðbeittur á móti gestum og gangandi á kjörstað við Strandgötuna í dag. Kjósendur áttu þess kost að velja á milli 21 frambjóðanda, sjö konur og fjórtán karla. Þegar upp er staðið er þess þó krafist að á listanum séu kynjahlutföll jöfn eða ekki færri en fjörutíu prósent af hvoru kyni. Kjörfundi lauk klukkan sex og búist er við að talningu ljúki um klukkan ellefu í kvöld. Úrslitin verða svo kynnt á Fjörukránni, ef allt gengur eftir áætlun. Um fyrsta sætið á lista Samfylkingarinnar á Akureyri tókust nafnarnir Hermann Óskarsson, formaður kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og Hermann Jón Tómasson, varabæjarfulltrúi. Eini núverandi fulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, Oktavía Jónsdóttir, býður sig ekki fram. Eingöngu er kosið um fjögur efstu sæti listans og samkvæmt prófkjörsreglum skulu þau skipuð 2 konum og 2 körlum. Tólf eru í framboði, fimm konur og sjö karlar. Um 800 manns eru á kjörskrá nyrðra og er talna þaðan að vænta um klukkan níu í kvöld.
Fréttir Innlent Samfylkingin Stj.mál Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Sjá meira