Sport

Pressan eykst á Steve Bruce

Enn eitt tapið á heimavelli í kvöld verður ekki til að styrkja Steve Bruce í sessi sem knattspyrnustjóra Birmingham
Enn eitt tapið á heimavelli í kvöld verður ekki til að styrkja Steve Bruce í sessi sem knattspyrnustjóra Birmingham NordicPhotos/GettyImages

Birmingham tapaði enn einum leiknum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið lá á heimavelli sínum fyrir West Ham 2-1 og komu öll mörkin í fyrri hálfleiknum. Stjórastóll Steve Bruce hjá Birmingham er fyrir vikið líklega sá heitasti í deildinni, því fallbarátta var ekki eitthvað sem forráðamenn félagsins sáu fyrir sér í sumar.

Emile Heskey kom Birmingham yfir snemma leiks á St. Andrews í kvöld, en mörk frá Bobby Zamora og Marlon Harewodd tryggðu nýliðum West Ham sigurinn og liðið því í ágætum málum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×