Sport

Wembley verður klár

Wembley verður klár á réttum tíma að mati enska knattspyrnusambandsins
Wembley verður klár á réttum tíma að mati enska knattspyrnusambandsins NordicPhotos/GettyImages

Enska knattspyrnusambandið hefur vísað á bug svartsýnum fréttum um að nýji Wembley-leikvangurinn verði ekki tilbúinn á tilsettum tíma fyrir úrslitaleikinn í enska bikarnum í vor, þó framkvæmdin sé komin heilum 75 milljónum punda fram úr kostnaðaráætlun og hafi tafist mikið að undanförnu.

"Verktakarnir hafa fullvissað okkur um að allt verði á áætlun og leikvangurinn verði afhentur formlega þann 31. mars. Því er engin ástæða til að ætla að bikarúrslitaleikurinn verði spilaður annarsstaðar og engin ástæða til að örvænta þrátt fyrir neikvæðar fregnir í fjölmiðlum," sagði talsmaður sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×