Kallað eftir lokun Guantanamo-búða 3. október 2006 07:00 Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal Ahmed (t.v.) og Iqbal eru hér á landi vegna heimildarmyndar um Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu.
Þótt alþjóðir hafi kallað eftir lokun fangabúða bandaríska hersins við Guantanamo-flóa á Kúbu, gengur hægt að rýma þær. Tveir ungir Bretar, aðalhetjur heimildamyndarinnar Leiðin til Guantanamo, fara þó sínar eigin leiðir í að reyna að fá búðunum lokað; þeir segja sögu sína. "Við verðum að segja frá þessu, því það sitja enn yfir fjögur hundruð menn án nokkurrar ákæru í Guantanamo-búðunum þó að okkur hafi verið sleppt," segir Asif Iqbal, en hann og félagi hans, Rhuhel Ahmed eru breskir ríkisborgarar af pakistönskum uppruna frá Tipton í Bretlandi sem sátu í Guantanamo-fangabúðum bandaríska hersins á Kúbu í tvö ár. Iqbal og Ahmed eru staddir hér á landi nú í tengslum við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík og Amnesty International á Íslandi og hittu blaðamann Fréttablaðsins að máli í gær. Iqbal, Ahmed og vinur þeirra Shafiq Rasul, sem oftast eru kenndir við heimabæ sinn og kallaðir Tipton-þremenningarnir, náðu athygli kvikmyndagerðarmannsins Michael Winterbottoms og ákváðu þeir í sameiningu að gera kvikmynd um lífsreynslu ungu mannanna. Kvikmyndin, Leiðin til Guantanamo (The Road to Guantanamo), var frumsýnd á Íslandi í gær.KvikmyndinGuantanamo búðirnar Fréttamynd sem bandaríski herinn sendi frá sér úr Camp X-ray í Guantanamoflóa fangabúðunum á Kúbu. Yfir 400 manns sitja þar enn án formlegrar ákæru. nordicphotos/afp"Við vildum í fyrstu ekki gera myndina, við vildum bara reyna að fara að lifa eðlilegu lífi á ný, en það er bara ekki hægt," sagði Iqbal. "Michael hélt áfram að hringja í okkur og loks ákváðum við að kannski væri besta leiðin sú að segja frá," bætti Ahmed við. Kvikmyndin sameinar raunveruleika og skáldskap, þar sem viðtöl við þremenningana eru klippt inn í leikin atriði sem lýsa eiga aðstæðum í Guantanamo.Iqbal, Ahmed og Rasul eru æskuvinir sem flugu frá Bretlandi til Pakistan árið 2001 til að mæta í brúðkaup Iqbals, en allir eru þeir múslimar. Meðan á dvöl þeirra í Pakistan stóð ákváðu þeir að fara yfir til Afganistans bæði til að skoða landið og til að bjóða fátækum íbúum þess þá aðstoð sem þeir gátu.En hlutirnir fóru á versta veg, þeir voru handteknir ásamt tugþúsundum annarra manna og fluttir fyrst í fangelsi í Afganistan og síðar til Guantanamo-fangabúðanna á Kúbu, þar sem þeir segjast hafa mátt sæta daglegum yfirheyrslum, stundum í tólf tíma á dag, pyntingum og öðrum hryllingi."Við lifðum í stöðugum ótta um líf okkar, allan liðlangan daginn," sagði Iqbal.Iqbal og Ahmed eru báðir 25 ára gamlir nú, en Rasul er fjórum árum eldri en þeir. Þeir voru meðal hinna fyrstu sem leystir voru úr búðunum, en í marsmánuði árið 2004 voru þeir sendir til Bretlands, þar sem þeim var sleppt úr haldi daginn eftir, án nokkurrar ákæru.Þeir ákváðu að þegja ekki um reynslu sína og í ágúst sama ár lögðu þeir fram kæru á hendur bandaríska ríkinu vegna misþyrminga og meðhöndlunar sem nálgaðist pyntingar. Það mál er enn fyrir dómstólum. "En það skiptir okkur í raun engu máli hvort við fáum nokkrar skaðabætur, svona lagað er ekki hægt að bæta. Það sem skiptir máli er að stöðva framgöngu Bandaríkjanna í Guantanamo-málinu," sagði Iqbal, sem kvæntist loks unnustu sinni í fyrra, fjórum árum eftir að brúðkaupið átti upphaflega að fara fram. Var brúðkaupið fest á filmu og er meðal atriðanna í myndinni.Guantanamo verður að stöðvaGuantanamo-búðirnar Fréttamynd sem bandaríski herinn sendi frá sér úr Camp X-ray í Guantanamoflóa-fangabúðunum á Kúbu. Yfir 400 manns sitja þar enn án formlegrar ákæru. nordicphotos/afpEnn sitja nær fimm hundruð menn í Guantanamo fangabúðunum og eingöngu um tíu þeirra hafa verið birtar formlegar ákærur. "Það sem þeir gera þarna er rangt; þú getur ekki bara pyntað fólk árum saman og bara sleppt þeim svo lausum," sagði Iqbar.Tipton-þremenningarnir, sem hafa ferðast með kvikmyndinni víða um heim, vona að Leiðin til Guantanamo muni hjálpa til við að búðunum verði loks lokað, líkt og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og fjölmargir leiðtogar vestrænna þjóða, hafa kallað eftir."Við hvetjum fólk til að skrifa sig á undirskriftalista Amnesty sem kallar eftir lokun búðanna, sem síðan verður sendur Bush forseta," sagði Iqbal. "Þetta getur hent hvern sem er. Þetta gæti komið fyrir föður þinn, son þinn, þig. Þetta er hernaður í nafni frelsis og við höfum lög, alþjóðalög sem eiga að koma í veg fyrir svona lagað, en samt sem áður sitja enn yfir fjögur hundruð menn í þessum búðum.""Fólk sem við hittum í Guantanamo árið 2002 situr þarna enn," bætti Ahmed við.MálþingÍslandsdeild Amnesty International og Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík efna til málþings um Guantanamo fangabúðirnar og kvikmynd Winterbottoms í Iðnó klukkan 18 í dag.Iqbal og Ahmed munu lýsa reynslu sinni og taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International, og Hrafnhildi Gunnarsdóttur kvikmyndagerðarmanni. Davíð Þór Jónsson, varaformaður Íslandsdeildar Amnesty International, stýrir umræðum.Kvikmyndin verður sýnd í Tjarnarbíói að málþinginu loknu (klukkan 20.10) og einnig á laugardag klukkan 22. Iqbal og Ahmed munu svara spurningum áhorfenda eftir sýningu myndarinnar í kvöld.
Erlent Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Veður Fleiri fréttir Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Sjá meira