Sænski herforinginn Tony Stigsson er ógn við öryggi þjóðar sinnar. Þessu hélt yfirmaður sænskra varnarmála, Håkan Syrén, fram í samtali við blaðamenn sænska blaðsins Dagens Nyheter.
Stigsson, sem áður var einn æðsti maður sænska hersins, hneykslaði Svía þegar hann var dæmdur fyrir ofbeldi gegn eiginkonu sinni í fyrra.
Ekki bætti úr skák þegar fram kom að hann hafði notað netið til að óska eftir félögum í hópkynlíf og að við lögreglurannsókn á heimili hans fundust 300 leyniskjöl hersins sem og klámmynd sem Stigsson hafði leikið í.
Varnarmálaráðuneytið hefur nú hert eftirlit sitt með starfsfólki til muna.