Aukin spenna við landamærin 8. október 2006 06:15 Stríðsminjar. Suður-kóreskir hermenn ganga fram hjá eftirlíkingum af kjarnorkusprengjum við stríðsminjasafn í Seúl. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni í dag eða á næstu dögum.
Suðurkóreski herinn skaut fjörutíu viðvörunarskotum að hermönnum í Norður-Kóreu sem fóru yfir landamæri sem skilja ríkin að í gærmorgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á allra næstu dögum, jafnvel í dag. Spenna á svæðinu hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem nær dregur kjarnorkutilraununum. Ekki er ljóst hvers vegna hermennirnir norður-kóresku héldu yfir landamærin í gær en þeir hörfuðu þegar viðvörunarskotunum var skotið að þeim. Þeir voru þá komnir þrjátíu metra inn fyrir vopnahléslínuna sem skilur löndin tvö að. Enginn þeirra slasaðist. Þetta er í annað skipti sem atvik á borð við þetta gerist á þessu ári. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hvatti Norður-Kóreumenn á föstudag til þess að hætta við fyrirætlanir sínar um smíði kjarnorkusprengju og hótaði alvarlegum afleiðingum ef þjóðin brygðist ekki við tilmælunum. Nágrannaþjóðir Norður-Kóreu hafa fagnað yfirlýsingu Öryggisráðsins. Sumar þjóðir hafa varað við því að kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna muni jafnvel koma af stað vopnakapphlaupi.
Innlent Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Fleiri fréttir Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Sjá meira