Málsókn gegn Norðmönnum eina leiðin 5. apríl 2006 16:50 Stjórnarandstæðingar voru sumir hverjir óánægðir með hversu lengi hefði dregist að taka ákvörðun um málsókn gegn Norðmönnum.
Málsókn gegn Norðmönnum virðist eina leiðin til að binda endi á ofríki þeirra við Svalbarða sagði utanríkisráðherra á Alþingi í dag. Ekki er þó ljóst hvenær af málsókn verður. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, innti utanríkisráðherra eftir því hvað liði málsókn gegn Norðmönnum. Magnús sagði Norðmenn hafa brotið á Íslendingum og taldi brýnt að gripið yrði til aðgerða, enda um mikilvægt mál að ræða. Geir H. Haarde utanríkisráðherra tók undir að Norðmenn hefðu farið harkalega fram gegn Íslendingum og fleiri þjóðum. Hann sagði að því virtist sem málsókn á hendur Norðmönnum væri eina leiðin sem væri fær úr því sem komið er. Ráðherra sagði að kallað hefði verið eftir upplýsing, lögmenn unnið í málinu og rætt hefði verið við önnur ríki sem eiga aðild að Svalbarðasamkomulaginu frá 1920. Stjórnarandstæðingum fannst sumum að málið hefði gengið hægt fyrir sig. Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, sagði að hann hefði viljað sjá meiri gang í aðgerðunum. Þingmaður Samfylkingarinnar lagði út af því að ráðherra sagði undirbúning hafa byrjað í ágúst 2004. Jón Gunnarsson sagði að 20 mánuðir væru nú liðnir frá því stjórnvöld hófu að undirbúa málsókn og var ósáttur við hversu lengi málið hefði dregist. Ráðherra sagði að um flókið þjóðréttarmál væri að ræða og því tæki tíma að undirbúa aðgerðir. Auk þess væri reynt að ná samningum við Norðmenn áður en málsókn hæfist.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Móðirin ætlar að áfrýja „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Tvö vilja í Endurupptökudóm Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri Neysluvatnið í Bolungarvík drullugt og í ólagi Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Opna sundlaugina í Grindavík á ný Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Sjá meira