Endurskoða ákvörðun um sumarhúsabyggð við Úlfljótsvatn 7. maí 2006 12:30 MYND/GVA
Frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík telur rétt að endurskoða þá ákvörðun að leggja land við Úlfljótsvatn undir sumarhúsabyggð. Þar er gert ráð fyrir sex hundrum lóðum undir sumarhús. Allir flokkar í framboði í Reykjavík tjáðu sig um málið á fundi í gær en fulltrúi „ex-bés" dró sig í hlé meðan á umræðunni stóð. Orkuveita Reykjavíkur og fasteingafélagið Klasi, sem er dótturfélag Glitnis, hafa stofnað hlutafélag um byggingu sex hundruð sumarbústaða við Úlfljótsvatn. Þar verður svokölluð frístundabyggð. Orkuveitan leggur til landið sem hlutafé en það er metið á hundrað og fimmtíu milljónir. Klasi lagði jafnháa upphæð fram. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt þessa ákvörðun og sagt uppbyggingu frístundabyggðar sem þessarar ekki í samræmi við starfsemi orkufyrirtækis. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, hefur sagt í fjölmiðlum að Orkuveitan sjálf byggi bústaðina, hún skipuleggi frístundabyggð í samvinnu við Klasa. Á fundi sem Íslandsvinir, Náttúruvaktin og Náttúruverndarsamtök Íslands boðuðu til í gær með frambjóðendum í borgarstjórnarkosningunum nú í vor voru fulltrúar allra framboðanna og tjáðu sig um stefnu flokkanna í umhverfismálum. Á fundinum var spurt um afstöðu framboðanna til frístundabyggðarinnar og tjáðu fulltrúar allra flokka, utan x-B, sig um málið. Var það mál manna að ákvörðunina þyrfti að taka til endurskoðunar og jafnvel réttast að hætta við framkvæmdir með öllu.Stefán Jón Hafstein, frambjóðandi Samfylkingarinnar, sagði rétt að endurskoða áætlunina.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Móðirin ætlar að áfrýja „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Tvö vilja í Endurupptökudóm Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri Neysluvatnið í Bolungarvík drullugt og í ólagi Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Opna sundlaugina í Grindavík á ný Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Sjá meira