Reglur um handfarangur rýmkaðar í Bretlandi 14. ágúst 2006 13:00 Frá flugvellinum í Birmingham í morgun. MYND/AP
Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu úr hættuástandi í viðbragðsstig. Um leið hafa reglur um handfarangur farþega í flugvélum verið rýmkaðar. Hættuástand hefur verið í gildi í Bretlandi frá því á fimmtudag þegar greint var frá því að tekist hefði að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn sprengdu upp nokkrar flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandarríkjanna. Á þriðja tug manna hefur verið handtekinn, grunaður um aðild að málinu. John Reid, innnanríkisráðherra Bretlands, sagði á blaðamannafundi í morgun að enn væri mikil hætta á hryðjuverkaárás eða árásum en hættan væri ekki yfirvofandi. Hann hvatti landa sína til þess að vera á varðbargi. Um leið og viðbúnaðarstigi var breytt voru reglur um handfarangur í flugi rýmkaðar aðeins. Reglurnar taka gildis strax en verður ekki beitt fyrr en á morgun á stærstu flugvöllum Bretlands. Samkvæmt þeim má hver farþegi taka einn hlut með sér um borð en hann má ekki fara yfir tiltekna stærð. Enn er blátt bann við öllum vökva um borð að undanskildum nauðsynlegum lyfjum og barnamjólk og barnamat. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli og flugvallarstjóri hafa í morgun borið saman bækur sínar í kjölfar fréttanna en að sögn Jóhanns R. Benediktssonar sýslumanns er ekki komin endanleg niðurstaða um það hvort rýmka eigi reglunar á Keflavíkurflugvelli. Þær hafi ekki verið jafnstrangar og í Bretlandi og því geti vel farið svo að reglurnar verði óbreyttar. Niðurstaða í málinu liggi fyrir síðar í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Þurfa að skila útprentuðum eyðublöðum því ekki tókst að uppfæra Völu Innlent Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum Innlent „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ Innlent Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Banaslys við Fossá Innlent Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Innlent Ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG Innlent Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Erlent Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Erlent Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Erlent Fleiri fréttir Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Risavaxin mörgæs slær í gegn Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Sjá meira