Hvetja landsmenn til að kjósa Magna 4. september 2006 15:59
Símafyrirtækin, Og Vodafone og Síminn hvetja stuðningsmenn Magna Ásgeirssonar að taka þátt í SMS kosningunni vegna RockStar Supernova aðfaranótt miðvikudags. Talsmenn símafyrirtækjanna telja mikilvægt að allir sem vettlingi geta valdið taki þátt í kosningunni og sendi SMS í númerið 1918 til þess að tryggja að öll atkvæði Magna komist til skila. Eitthvað bar á því í síðustu kosningu að skilaboðin færu í rangt númer. Í sameiginlegri tilkynningu símafyrritækjanna segir að SMS kosningin í RockStar sé ein sú viðamesta sem haldin hefur verið á Íslandi þar sem sami aðili fær nánast öll atkvæðin. Í síðustu viku þrefaldaðist þátttakan miðað við fyrsta kvöldið og tugfaldaðist miðað við vikurnar þar á undan. Símafyrirtækin benda á að það gæti verið ágætt fyrir fyrir Íslendinga að dreifa álaginu og þeir sem geta beðið í nokkrar mínútur með að kjósa geri það. Bæði símafyrirtækin verða með tæknimenn á vakt alla nóttina til að reyna að tryggja að allt gangi vel fyrir sig. Kosningin stendur frá 1:50 til 6:00 og margir taka daginn snemma og vakna til þess að kjósa rétt áður en lokað er fyrir kosninguna. Eins og áður hafa Íslendingar tvær leiðir til að kjósa þ.e. með SMS eða á vefnum www.rockstar.msn.com. Til að kjósa með SMS þarf að senda SMS skilaboð í númerið 1918 með textanum "Rock 2" ef kjósa á keppanda númer 2. Það kostar ekkert að kjósa á vefnum en SMS skeytið kostar 19 kr. og lækkuðu bæði símafyrirtækin verðið í síðustu viku til þess að styðja Magna í baráttunni.
Fréttir Innlent Lífið Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira