Hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið 5. september 2006 12:00
Níu ungir menn voru handteknir í Óðinsvéum í Danmörku í nótt, grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Danska leyniþjónustan hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið. Mennirnir níu búa allir í Vollsmose, úthverfi Óðinsvéa þar sem sextíu prósent íbúa eru af erlendum uppruna. Lars Findsen, yfirmaður leyniþjónustunnar sagði í samtali við dagblaðið Berlingske Tidende að hún hefði sterkar vísbendingar um að mennirnir hefðu viðað að sér efni til sprengjugerðar undanfarna mánuði. Lögreglan hefði látið til skarar skríða nú í nótt, vegna þess hversu erfitt reyndist að tímasetja ætluð hryðjuverk. Pétur Hannesson er við nám í Óðinsvéum og segist ekki fara inn í Vollsmose-hverfið nema hann nauðsynlega þurfi. Ekki hefur verið upplýst hvar mennirnir ætluðu sér að fremja hryðjuverkin né heldur hversu langt undirbúningur þeirra var kominn. Mennirnir eru allir undir þrítugu og verður krafist gæsluvarðhalds yfir þeim í dag. Nú rétt fyrir hádegið upplýsti Lene Espersen, dómsmálaráðherra Dana, að flestir mannanna sem handteknir voru í nótt væru danskir ríkisborgarar. Að minnsta kosti einn þeirra er danskur að uppruna.
Erlent Fréttir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira