Mörk frá Andy Johnson og Tim Cahill hafa tryggt Everton tveggja marka forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks á Goodison Park í viðureign Everton og Liverpool.
Nokkurt jafnræði hefur verið með liðunum en Everton hefur nýtt sín færi mjög vel. Cahill skoraði á 24. mínútu en Johnson á þeirri 36.