Jens Lehmann, markvörður Arsenal, er nú til rannsóknar hjá lögreglu í Manchester eftir að henni bárust athugasemdir um að markvörðurinn hefði sparkað vatnsbrúsa í átt að stuðningsmönnum United í stúkunni á leik liðanna á sunnudag.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem atvik á borð við þetta eiga sér stað á leik þessara stórliða og oft hefur allt komist á suðupunkt - þó ekki sé brúsaspark þýska markvarðarins nú það alvarlegasta.