Þrjú börn myrt í Saint Louis 24. september 2006 19:15
Íbúar í Saint Louis í Bandaríkjunum eru slegnir óhug eftir að þrjú börn fundust myrt þar í borg í gær. Skömmu áður var 26 ára kona ákærð fyrir að hafa myrt móður þeirra með því að skera fóstur úr kvið hennar. Lík barnanna þriggja fundust í fjölbýlishúsi í borginni í gærkvöldi. Fórnarlömbin voru þau DeMond Tunstall, sjö ára, bróðir hans Ivan, tveggja ára, og systir þeirra Jinela, sem var eins árs. Þeirra hafði verið leitað síðan á mánudaginn og tóku borgarar þátt í leitinni ásamt lögreglu. Héldu flestir í vonina um að þau fyndust heil á húfi en sú varð ekki raunin. Móðir barnanna, hin 23 ára gamla Jimella Tunstall, fannst látin á byggingarlóð í borginni á föstudaginn. Hún var þá komin sjö mánuði á leið og hafði morðingi hennar skorið fóstrið úr kvið hennar. Nokkru síðar var hin 26 ára gamla Tiffany Hall handtekin og síðar ákærð fyrir að hafa myrt Jimellu. Tiffany var fjölskylduvinur og því þekktu börnin vel til hennar. Að sögn vitna mun Tiffany hafa greint frá því fyrir nokkrum dögum að hún hefði jarðað andvana fætt barn sitt og talið að þar sé grafið fóstur konunnar. Lögregla telur að Tiffany hafi rotað Jimellu og síðan skorið fóstrið úr kvið hennar með skærum. Jimellu hafi síðan blætt út. Óvíst er hvort Tiffany verður ákærð fyrir morðið á börnunum þremur og ekki vitað hvort hún hafi átt sér vitorðsmann.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira