Ástralski framherjinn Mark Viduka getur ekki spilað með Middlesbrough næstu sex vikurnar eða svo eftir að í ljós kom að hann tábrotnaði í leik gegn Newcastle á sunnudaginn.
"Þetta er leiðinlegt fyrir Mark því hann var í þann mund að ná sér í leikform, en meiðsli eru hluti af fótboltanum og nú verða aðrir framherjar í hópnum að spýta í lófana og sýna að þeir geti leyst hann af hólmi," sagði Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough.