Gefur Aaron Lennon aðvörun 2. nóvember 2006 17:15 Martin Jol heldur hinum 19 ára gamla Aaron Lennon á jörðinni NordicPhotos/GettyImages
Martin Jol hefur sent enska landsliðsmanninum Aaron Lennon aðvörun og hvetur hann til að ná meiri stöðugleika í frammistöðu sína með Tottenham - ella verði hann á fá sér sæti á varamannabekknum. Lennon er aðeins 19 ára gamall og hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn eftir að hann fékk fyrir tilviljun tækifæri í byrjunarliðinu á síðustu leiktíð. Lennon hefur á tíðum verið besti maður Tottenham á þessari leiktíð, en stjóra hans finnst vanta stöðugleika hjá honum. "Ef Aaron spilaði alltaf eins og hann getur best, væri ég ekki í nokkrum vafa um að hann væri alltaf í byrjunarliði mínu. Ef hann hinsvegar spilar oftar eins og hann gerði gegn Watford um síðustu helgi, verður hann bara að sitja á bekknum," sagði Jol. "Leikmenn á borð við Lennon eru fátíðir og ég veit ekki nema um tvo eða þrjá svona leikmenn í Hollandi. Hér á Englandi eru það kannski Ryan Giggs, Cristiano Ronaldo og Shaun Wright-Phillips sem búa yfir svipaðri færni, en menn á borð við þá verða að komast framhjá andstæðingum sínum og það er þeirra hlutverk. Ef Lennon gerir það ekki, verð ég að skipta honum út fyrir reyndari leikmann," sagði Jol en það verður að teljast nokkuð einkennilegt að hann skuli velja sér Aaron Lennon til að gagnrýna úr leikmannahópi sínum á meðan reyndari leikmenn eins og Jermaine Jenas hafa á tíðum orðið sér til háborinnar skammar á vellinum á leiktíðinni.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Coventry | Komast heimamenn af botninum? Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Sjá meira