Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Birmingham þegar flautað hefur verið til leikhlés í virðureign liðanna í enska deildarbikarnum. Það var danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark Liverpool í uppbótartíma, en Mohamed Sissoko þurfti að fara meiddur af velli eftir 26 mínútur. Leikurinn hefur verið fjörlegur og er í beinni útsendingu á Sýn.
Englandsmeistarar Chelsea hafa yfir 1-0 gegn Aston Villa í hálfleik með marki Frank Lampard, en staðan er 0-0 í leik Everton og Arsenal sem og í leik Tottenham og Port Vale - en þar eru nokkrar mínútur eftir af fyrri hálfleik.