Ekið frá Selfossi til Alþingis með undirskriftir í dag 8. desember 2006 12:12
Sunnlendingar og fleiri hyggjast fjölmenna í bílalest þar sem ekið verður frá Tryggvaskála á Selfossi og niður að Alþingishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Þar ætla þeir að afhenda Alþingi undirskriftir 25 þúsund Íslendinga sem skora á þingið að lögfesta tvöföldun Suðurlandsvegar án tafar.Umræður um tvöföldun Suðurlandsvegar hafa verið háværar í þjóðfélaginu að undanförnu enda hefur umferð um veginn hefur vaxið hörðum skrefum undanfarin ár og fara nú um 11 þúsund bílar um hann á dag. Þverpólitísk samstaða virðist um efnið og hefur samgönguráðherra lýst því yfir að hann vilji tvöfalda veginn.Hópi manna á Suðurlandi þykir þetta ekki nóg hafa undanfarnar þrjár vikur staðið fyrir undirskriftasöfnun þar sem farið er fram á að Alþingi samþykki tafarlaust að tvöfalda veginn. Eyþór Arnalds, einn þeirra sem staðið hafa að undirskriftasöfnuninni, segir að lagt verði af stað frá Tryggvaskála klukkan 16 og komið að Alþingishúsinu um klukkan fimm þar sem undirskriftirnar verða afhentar. Eyþór segir að áskorunin sé vel meint og stuðningsyfirlýsing við þá sem geri vel. Efasemdir hafa komið fram um það að tvöfalda þurfi veginn og bent á lítill munur sé á slysatíðni á þriggja akreina vegum og fjögurra akreina. Eyþór segir um það að Sunnlendingar og flestir í landinu séu sammála um að aðeins það besta sé nógu gott. Reykjanesbrautin hafi sannað gildi sitt og sambærilegur vegur eigi að liggja um Suðurland. Þetta sé ákvörðun sem varði ekki daginn í dag heldur næstu áratugi.
Stj.mál Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Fleiri fréttir „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Fangi lést á Litla-Hrauni Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn „Hefði verið ágætt að fresta þessu veðri fram yfir áramót“ „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“ Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað Móðirin ætlar að áfrýja „Sænska ástandið“ orðið að norrænu Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar Bein útsending: Kosningafundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar Tvö vilja í Endurupptökudóm Kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna blóðmerahalds Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur Skriðuföll á Vestfjörðum og lokað fyrir vatnið á Flateyri Neysluvatnið í Bolungarvík drullugt og í ólagi Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Loka fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðu Opna sundlaugina í Grindavík á ný Þeim fækkar sem lesa og skrifa skilaboð við akstur Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Sjá meira