Wade ómeiddur en Riley æfur 29. desember 2006 15:30 Pat Riley vill með engu móti missa sinn besta leikmann í meiðsli. MYND/Getty
Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. Wade er sagður aumur í hendinni en kemur sterklega til greina í leikmannahóp liðsins sem mætir New Jersey í nótt. Atvikið gegn Chicago átti sér stað í miðjum fyrsta leikhluta og sagði Riley eftir leikinn að Hinrich hefði viljandi slegið í hendi Wade. Chicago sigraði leikinn, 109-103. “Hinrich togaði í hendina á honum. Hann gerir það alltaf,” sagði hundfúll Riley. “Hinrich er vanur að dekka Wade í þessum leikjum og alltaf þegar myndavélunum er beint eitthvað annað tekur hann upp á einhverjum bolabrögðum gegn Wade – togar í treyjuna hans, stígur á tærnar eða lemur í hendurnar á honum. Það er óþolandi,” sagði Riley. Hinrich svaraði ásökum Riley á þann veg að hann hefði engan tíma til að hugsa um hvað þjálfara annars liðs finnst um leikstíl sinn. “Ég verð bara að hugsa um sjálfan mig. Hann ætti að gera það líka, einbeita sér að því að bæta leik Miami. Hann hefur nú oft verið betri.” Wade hefur verið langbesti leikmaður Miami á tímabilinu, skorað 27,5 stig og gefið 7,8 stoðsendingar að meðaltali það sem af er leiktíð.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira