Capello hrósar Beckham fyrir frammistöðu sína 11. febrúar 2007 12:57 Fabio Capello segir Beckham fyrir verkum í leiknum í gærkvöldi. MYND/Getty
Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, hrósaði David Beckham í hástert fyrir frammistöðu sína gegn Real Sociedad í gærkvöldi, en Beckham skoraði fyrra mark liðsins í 2-1 sigri eftir að hafa verið óvænt valinn í byrjunarliðið. Capello segist alltaf borið traust til Beckham. "Ég hef alltaf treyst mínum leikmönnum," sagði Capello eftir leikinn, aðspurður um hvort hann hefði búist við annari eins frammistöðu af Beckham eftir allt það sem á undan hefði gengið. "Beckham hefur ekki spilað í langan tíma en hann stóð sig mjög vel," bætti hann við. Capello segist hafa talað við Beckham í vikunni og tjáð honum að hann ætti að skora meira af mörkum. "Hann hefur ekki verið upp á sitt besta á þessu tímabili og ég sagði honum að hann skoraði ekki nógu mikið af mörkum. Í dag skoraði hann hins vegar mjög mikilvægt mark." "Beckham er snjall einstaklingur með mikla hæfileika á ákveðnum sviðum og leikur hans í kvöld er eðlilegt framhald af frammistöðu hans á æfingum síðustu vikur. Það er mjög gott fyrir liðið ef Beckham heldur áfram að spila svona," sagði Capello, en fastlega má búast við því að fyrrum enski landsliðsmaðurinn haldi sæti sínu í spænska liðinu í næsta leik.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Handbolti Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Segir að Saliba og Gabriel séu besta miðvarðapar í Evrópu Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Viðurkennir að hafa sleppt því að spjalda Messi til að fá treyjuna hans Sjáðu ótrúlega vörslu Raya og öll mörkin úr Meistaradeildinni Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Atlético lagði sprækt lið Leipzig Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Benfica og Leverkusen byrja á sterkum útisigrum Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Úlfur Ágúst orðaður við Messi og félaga á Miami Sparkað eftir tapið rosalega gegn Bayern Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Haaland neitaði að gefa Acerbi treyjuna sína eftir að hann hafði ítrekað togað í hana Næstu mótherjar Íslands mun ofar á heimslista Fannst stemningin á Etihad steindauð Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn