ÍR-ingar bikarmeistarar 17. febrúar 2007 17:41
ÍR-ingar eru bikarmeistarar karla í körfubolta árið 2007 eftir 83-81 sigur á Hamri/Selfoss í Laugardalshöllinni. ÍR hafði undirtökin lengst af í leiknum en Hamarsmenn voru aldrei langt undan og voru lokasekúndurnar æsispennandi líkt og í kvennaleiknum fyrr í dag. ÍR-ingar eru vel að titlinum komnir og gaman fyrir liðið að fá titilinn í hús á 100 ára afmæli félagsins. Jón Arnar Ingvarsson þjálfari ÍR hafði sigur gegn bróður sínum Pétri sem stýrir liði Hamars og var þetta í fyrsta skipti sem bræður berjast sem þjálfarar í úrslitaleik bikarkeppninnar. George Byrd var yfirburðamaður í liði Hamars hvað tölfræði snertir en hann skoraði 24 stig, hirti 15 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Nate Brown var stigahæstur hjá ÍR með 17 stig, Keith Vassell skoraði 14 og Eiríkur Önundarson skoraði 13 stig en þurfti að fara af velli með fimmtu villuna undir lokin. ÍR nýtti 65% tveggja stiga skota sinna í leiknum en Hamar aðeins 47%, en Hamar var með betri 3ja stiga nýtingu - 47% gegn 37% ÍR. Hamarsmenn hirtu 38 fráköst í leiknum en ÍR-ingar aðeins 26. Þá má segja að vítanýtingin hafi komið liði Hamars í koll í leiknum því þar nýtti liðið aðeins rétt rúmlega helming víta sinna (13 af 25), sem er dýrt í bikarúrslitaleik. ÍR nýtti um 70% sinna 13 víta í leiknum.
Dominos-deild karla Mest lesið „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Aftur tapar Liverpool Fótbolti KR vann nýliðaslaginn Körfubolti Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana Körfubolti Tottenham bjargaði stigi í Noregi Fótbolti Meistararnir byrja á góðum sigri Körfubolti Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Íslenski boltinn Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana KR vann nýliðaslaginn Meistararnir byrja á góðum sigri Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 64-81 | Reynslan skilaði gestunum sigri „Væri eiginlega kjánalegt að segjast ekki ætla að gera betur“ Ragnar frá Þorlákshöfn í Grindavík „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Al Horford til Golden State Uppgjörið: Stjarnan - Valur 90-89 | Stjarnan náði að halda út og er meistari meistaranna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 83-86 | Njarðvík meistari meistaranna eftir kaflaskiptan leik Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Sjá meira