Mourinho hefur litlar áhyggjur af samningamálum 10. mars 2007 15:39 Jose Mourinho er slakur á því þessa dagana. MYND/Getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur litlar áhyggjur af samningaviðræðum nokkurra sinna lykilmanna við stjórn félagsins og heldur fast í þá trú að hann muni halda öllum sínum bestu mönnum. Stjórnarformaður Chelsea segist ekki á þeim buxunum að sleppa hendinni af Frank Lampard. "Ég tel að félagið sé í góðri stöðu. Það eru engir leikmenn í mínu liði sem verða samningslausir í sumar. Því þurfum við ekki að hafa miklar áhyggjur enn sem komið er," segir Mourinho, en þeir Lampard og fyrirliðinn John Terry eiga rúm tvö ár eftir af núverandi samningi sínum við félagið og gætu, samkvæmt nýjum reglum FIFA, keypt sig út úr síðustu tveimur árum samningstímans. "Allir vita að við viljum halda þeim leikmönnum sem mynda hrygginn í okkar liði. Chelsea mun gera allt sem í valdi félagsins stendur til að halda þeim hjá sér," sagði Mourinho. Stjórnarformaðurinn Peter Kenyon sagði að viðræður við Lampard um nýjan samning hæfust á allra næstu dögum. "Það er gríðarlega mikilvægt að Lampard verði áfram. Hann og fleiri leikmenn eru ómissandi. Hvar er hægt að finna betri miðjumann en hann? Hvaða varnarmaður er betri en Terry? Hvaða markvörður getur komið í stað Petr Cech? Við viljum hafa þessa menn hjá okkur í mörg ár til viðbótar," sagði Kenyon.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira