Fyrsta konan formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins 17. mars 2007 19:15
Mona Sahlin var í dag kosin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, fyrst kvenna í 118 ára sögu flokksins. Formaður Samfylkingarinnar ávarpaði aukalandsfund flokksins í Stokkhólmi í dag og sagði það sögulegt að konur leiddu nú jafnaðarmenn í þremur Norðurlandanna. Það var þakklátur Göran Persson sem kvaddi flokksmenn og lét af leiðtogaembætti sænskra jafnaðarmanna í dag. Hann ákvað að víkja skömmu eftir að flokkurinn tapaði í þingkosningum í fyrra. Mona Sahlin var sjálfkjörinn formaður. Hún sagðist finna fyrir miklu stolti yfir að vera fyrsta konan sem yrði formaður flokksins. Henni liði eins og flokksmenn hefðu látið hana verða fyrstu konuna sem færi yfir þennan þröskuld og hún lofaði því að loka ekki dyrunum á eftir sér. Sahlin hefur sagst leggja áherslu á þrjá málaflokka: loftslagsmál, velferðarkerfið og atvinnumál. Konur eru nú í fyrsta sinn leiðtogar jafnaðarmanna í þremur Norðurlandanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Helle Thorning Schmidt, leiðtogi danskra jafnaðarmanna, fögnuðu með Sahlin í dag. Ingibjörg Sólrun sagði þetta tímamót í sögu sænskra jafnaðarmanna. Hún sagði þetta ef til vill ekki koma á óvart í sjálfu sér því á hinum Norðurlöndunum væri gjarnan litið til Svíþjóðar sem fyrirmyndarþjóðfélags með tilliti til jafnréttismála. Dagurinn í dag væri stór dagur fyrir jafnréttisbaráttuna og lýðræðið. Sahlin hefur verið nokkuð umdeild en hún sagði af sér sem ráðherra 1995 eftir að upp komst að hún hefði notað opinbert greiðslukort í eigin þágu. Sahlin sneri aftur í sænsk stjórnmál þremur árum síðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira