Haldi lífi í dreifðari byggðum 25. mars 2007 19:15
Innflytjendur og farandverkafólk hafa, í mörgum tilfellum, hleypt miklu lífi í dreifðari byggðir Bretlands og Skotlands við að setjast þar að. Þetta segir breskur sérfræðingur í málefnum innflytjenda í dreifbýli. Hún geldur þó varhug við að stuðla að flutningi á svæði þar sem miklir erfiðleikar steðji að innfæddum. Ráðstefna um þátttöku og móttöku innflytjenda í dreifbýli hefst í Hömrum á Ísafirði á morgun og stendur fram á miðvikudag. Helstufræðimenn í málefnum innflytjenda og byggðaþróunar flytja þar erindi. Þar á meðal er Philomena de Lima er aðalfyrirlesaari á ráðstefnunni. Hún hefur rannsakað stöðu innflytjenda í dreifbýli og lauk nýlega athugun á farandverkamönnum í Grampian héraði í Skotlandi. Á ráðstefnunni er spurt hvort innflytjendur séu hvalreki eða ógn fyrir samfélög á landsbyggðinni. Philomena segir einfalt að tala um hvalreka eða ógn. Horfa þurfi til þess að innflytjendur og farandverkamenn geti lagt mikið til dreifðari byggða. Dæmi séu um það í Englandi og Skotlandi. Þar hafi aðkomufólk utan frá hjálpað til við að halda lífi í byggðum. Innflytjendur hafi kokmið þar að, unnið og borgað til samfélagsins og um leið eytt fé þar í vöru og þjónustu. Vissulega muni einhverjir halda því fram að innflytjendur sendi nær allt sitt fé úr landi til ættingja í heimalandinu. Hafa verið þó í huga að margir taki fjölskyldu sína, börn og fleiri, með sér til nýs lands - vissulega þó ekki allir. Það geti haldið lífi í til dæmis skóla í smáþorpi, eða pósthúsi svo eitthvað sé nefnt. Philomena geldur þó varhug við því að innflytjendur og farandverkafólk setjist að þar sem innfæddir eigi erfitt með að fá vinnu eða lítið sé um húsnæði. Ef spenna sé þegar mikil meðal innfæddra geti það valdið árekstrum og vanda að flytja erlent verkafólk á þau svæði þar sem svo sé.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira