Tamíl-tígrar gerðu loftárás 26. mars 2007 19:00
Upplýsingafulltrúi norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka segir ekki of djúpt í árina tekið að segja landið ramba á barmi borgarastyrjaldar. Þrír týndu lífi og 16 særðust í loftárás Tamíl-tígra á herflugvöll í höfuðborginni Colombo. Loftárásin er sú fyrsta sem tígrarnir gera. Tvær litlar flugvélar voru notaðar í árásinni og vörpuðu þær tveimur sprengjum á stæði þar sem flugvélar og herþyrlur eru geymdar. Alþjóðaflugvellinum í Colombo, sem stendur við herflugvöllinn, var lokað tímabundið eftir árásina, en hann varð þó ekki fyrir skemmdum. Í yfirlýsingu frá tígrunum segir að stjórnarherinn megi búast við álíka árásum í nánni framtíð. Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi norræna vopnahléseftirlitsins, segir þetta bæta við fleiri óvissuþáttum í átök stjórnarhersins og tígranna. Mikið hefur verið um átök í landinu en vopnahlé hefur þó verið í gildi þar síðan í febrúar 2002. Þrátt fyrir það hafa rúmlega fjögur þúsund manns týnt lífi í átökum síðustu fimmtán mánuði. Þorfinnur segir ekki fjarri lagi að tala um að landið rambi á barmi borgarastyrjaldar. Þorfinnur segir að barist sé á hverjum einasta degi en langmest á takmörkuðum svæðum í landinu. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch vilja að Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna komi að málum á Srí Lanka. Þorfinnur segir að bæta megi slíkri starfsemi við. Hann segir að hins vegar hafi stjórnvöld á Srí Lanka hafnað slíku eindregið og sagt að það kæmi ekki til greina. Þau stjórnmálaöfl sem séu andvíg erlendri íhlutun í landinu hafi ekki bara gagnrýnt Norðmenn fyrir að vera sáttasemjara á Srí Lanka heldur einnig gagnrýnt Sameinuðu þjóðirnar í heild sinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira