Grindavík jafnaði metin gegn Njarðvík 26. mars 2007 21:30
Grindavík náði að jafna metin gegn Njarðvík í rimmu liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla með því að sigra, 88-81, í viðureign liðanna í kvöld. Frábær fyrri hálfleikur lagði grunninn að sigrinum en Njarðvíkingar komust býsna nálægt því að jafna metin í síðari hálfleik en minnstur varð munurinn þrjú stig. Grindvíkingar höfðu yfir í hálfleik 56-26, en með frábærri spilamennsku í síðari hálfleik náðu Njarðvíkingar að koma sér inn í leikinn. Þegar 12 sekúndur voru til leiksloka minnkaði Jeb Ivey muninn í þrjú stig, 84-81, en nær komust Njarðvíkingar ekki þrátt fyrir hetjulega baráttu. “Við erum bestir á Íslandi í að missa niður gott forskot. Við spiluðum illa í seinni hálfleik og ég er bara þakklátur fyrir að hafa náð að klára þetta. Strákarnir voru sterkir á taugum í lokin og það var mikilvægt að jafna metin,” sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, í samtali við Sýn eftir leikinn. “Það er ekkert grín að ætla að hlaupa 30 stig af sér. Hefðum við fengið tvær mínútur í viðbót hefðum við náð þessu,” sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. Jonathan Griffin skoraði mest Grindvíkinga eða 21 stig en Adam Darboe var með 20 stig. Hjá Njarðvík skoruðu Igor Beljanski og Jóhann Árni Ólafsson 21 stig hvor.
Dominos-deild karla Mest lesið Aftur tapar Liverpool Fótbolti „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn KR vann nýliðaslaginn Körfubolti Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana Körfubolti Tottenham bjargaði stigi í Noregi Fótbolti Meistararnir byrja á góðum sigri Körfubolti Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Íslenski boltinn Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana KR vann nýliðaslaginn Meistararnir byrja á góðum sigri Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 64-81 | Reynslan skilaði gestunum sigri „Væri eiginlega kjánalegt að segjast ekki ætla að gera betur“ Ragnar frá Þorlákshöfn í Grindavík „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Al Horford til Golden State Uppgjörið: Stjarnan - Valur 90-89 | Stjarnan náði að halda út og er meistari meistaranna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 83-86 | Njarðvík meistari meistaranna eftir kaflaskiptan leik Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Sjá meira