Þreyttir á straumi innflytjenda -Sarkozy Óli Tynes skrifar 2. apríl 2007 14:47 Nicolas Sarkozy, forsetaframbjóðandi í Frakklandi. MYND/AP
Nicolas Sarkozy, frambjóðandi í frönsku forsetakosningunum, sagði í dag að Frakkar væru þreyttir á óheftum straumi innflytjenda til landsins. Hann sagði að augljós tengsl væru á milli fjölda innflytjenda og hinnar félagslegu uppreisnar sem orðið hefði í mörgum frönskum borgum. Átök í borgunum hafa aðallega verið milli lögreglu og innflytjenda frá Afríku- og Arabaríkjum. Nicolas Sarkozy, sem sjálfur er ungverskur að uppruna, sagði af sér sem innanríkisráðherra, þegar hann sneri sér að kosningabaráttunni. Hann hefur lagt til að sett verði á stofn sérstakt ráðuneyti "innflytjenda og þjóðarvitundar." Sarkozy hefur gott forskot á aðra frambjóðendur í kosningaslagnum. Ýmsum að óvörum hafa nokkur samtök múslima lýst yfir stuðningi við annan hægri mann, í kosningabaráttunni. Það er Jean-Marie le Pen, sem einnig vill hefta straum innflytjenda. Einn hinna múslimsku stuðningsmanna hans sagði í viðtali að þegar faðir hans fluttist til Frakklands hafi hann vitað að hann yrði að leggja hart að sér til þess að búa fjölskyldu sinni gott líf. Slíkt hið sama hefði hann sjálfur gert þegar hann óx úr grasi. Hinir nýju innflytjendur litu hinsvegar á Frakkland sem eitthvað Eldorado, þar sem þeir fengju allt upp í hendurnar. Þeir nenntu ekkert að leggja á sig sjálfir.
Erlent Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira