Hvíta húsið harmar ákvörðun Írana Jónas Haraldsson skrifar 9. apríl 2007 17:02 George W. Bush, forseti Bandaríkjanna. MYND/AFP
Hvíta húsið hefur lýst yfir áhyggjum vegna yfirlýsinga Írana í dag um að þeir hafi hafið framleiðslu á auðguðu úrani í iðnaðarmagni. „Við höfum miklar áhyggjur af tilkynningu Írana." sagði Gordon Johndroe, talsmaður öryggisráðs Hvíta hússins. „Íranar halda áfram að ögra alþjóðasamfélaginu og einangra sig enn frekar með því að auka við kjarnorkuáætlun sína frekar en að draga úr henni." Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, skýrði frá þessari ákvörðun í ræðu sem hann hélt á fréttamannafundi í dag. Þá var sagt frá því að þeir hefðu hafið auðgun úrans í 3.000 skilvindum en með þeim tekur Írana aðeins eitt ár að framleiða nóg úran til þess að nota í kjarnorkusprengju. Íranar hafa þó ávallt neitað þeim ásökunum vesturveldanna um að þeir ætli sér að koma upp kjarnorkuvopnum og segjast aðeins ætla að nýta kjarnorkuna til þess að framleiða rafmagn. Einnig sögðu þeir að ef þeir þyrftu að sæta frekari þrýstingi af hálfu alþjóðasamfélagsins myndu þeir hugsanlega segja sig úr samningnum um takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna (NPT) og hætta samstarfi við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina (IEAE).
Erlent Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira