Sólgos talin hafa áhrif á loftslagsbreytingar 11. apríl 2007 19:45
Æ fleiri vísindamenn eru að komast á þá skoðun að samspil sólgosa og geimryks hafi talsvert að segja um loftslagsbreytingar á jörðinni. Þeir telja að fylgni sé á milli hlýnunar jarðar og mikilla sólgosa undanfarna áratugi. Ekki er lengur um það deilt að hitastig jarðar hefur hlýnað óeðlilega mikið síðastliðna áratugi og sveiflur í veðurfari orðið öfgakenndari. Meginþorri vísindamanna er þeirrar skoðunar að þessar breytingar séu að miklu leyti af manna völdum en sitthvað fleira gæti haft áhrif í þessu sambandi. Einn þeirra þátta sem æ fleiri vísindamenn beina nú sjónum sínum að er samspil svonefndra sólgosa og ýmis konar geimryks sem kemst inn í gufuhvolf jarðar. Röskun á þessu samspili hefur áður valdið breytingum á loftslagi plánetunnar. Eftir því sem sólgos verða tíðari eiga geimagnirnar erfiðara með að komast inn í gufuhvolfið. Skýjamyndun er ekki eins ör og við það hækkar hitastigið. Til að sýna fram á þetta hafa stjarneðlisfræðingar við Geimrannsóknastofnun Danmerkur búið til líkan af sólkerfinu sem sýnir hvernig geislunin vegna gosanna bægir ögnunum frá. Þetta ferli segja vísindamennirnir að sé einmitt í gangi núna og því hefur hækkun hitastigs á jörðinni orðið ennþá örari en ella.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira