Ísraelsk stjórnvöld gagnrýnd Guðjón Helgason skrifar 30. apríl 2007 12:48
Búist er við að stuðningsmenn jafnt sem andstæðingar krefjist afsagnar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, eftir að skýrsla rannsóknarnefndar um stríðsrekstur Ísraela í Líbanon í fyrra verður birt í dag. Olmert og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, eru harðlega gagnrýndir fyrir mistök í starfi. Um er að ræða bráðabirgðaskýrslu sérstakrar nefndar sem ríkisstjórnin skipaði til að fara yfir aðgerðir hers í átökunum við Hizbollah-liða í Líbanon í fyrra. Nefndin hefur einnig farið yfir ákvarðanatökuferli innan ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt heimildum ísraelskra fjölmiðla verður skýrslan áfellisdómur á framkvæmdina og aðgerðir ríkisstjórnar Olmerts. Talið er að forsætisráðherrann verði jafnvel víttur fyrir það að hafa í fljótfæri og vanhugsun lagt út í stríð. Ekki hafi verið búið að skilgreina markmið nægilega vel og aðgerðin því dæmd til að mistakast. Um 1.200 Líbanar týndu lífi í átökunum, flestir þeirra almennir borgarar. 160 Ísraelar féllu, langflestir þeirra hermenn. Það er talið fullvíst að Amir Peretz, varnarmálaráðherra og leiðtogi verkamannaflokksins, verði ávíttur fyrir mistök í starfi. Reynsluleysi hans hafi skinið í gegn. Líklegt er talið að dagar hans á ráðherrastóli verði taldir eftir að skýrslan hefur verið birt. Talið er að Olmert svari skýrslunni þannig að öll ríkisstjórnin hafi staðið að ákvörðuninni að fara í stríð. Hann ætli að fara að öllum tillögum nefndarinnar og koma þeim til framkvæmda. Mótmælafundur hefur verið boðaður í Tel Aviv á morgun þar sem búist er við að afsagnar Olmerts verði krafist.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira