41 lét lífið í átökum í Pakistan um helgina Jónas Haraldsson skrifar 14. maí 2007 07:49 Mótmælendu brenna flagg flokks Musharraf, forseta Pakistan, um helgina. MYND/AFP
Stuðningsmenn æðsta dómara Pakistans, sem rekinn var úr embætti fyrr á árinu, hafa boðað til verkfalls í landinu eftir að 41 lét lífið í átökum í Karachi um helgina. Yfirvöld hafa bannað samkomur sem fleiri en fimm manns sækja eftir harða götubardaga um helgina. Stuðningsmenn dómarans og stuðningsmenn stjórnvalda tókust þá á. Andstæðingar stjórnvalda í landinu hafa notað deilurnar til þess að reyna að koma sínum málstað á framfæri. Stjórnarandstæðingar ásökuðu flokk Pervez Musharraf, forseta landsins, um að hafa hafið átökin en því neitar hann. Herinn var sendur út á götur í Karachi í gærkvöldi en tókst ekki að koma á ró í borginni. Jarðarfarir fóru þá fram og urðu enn meiri átök í kjölfar þeirra. Yfirvöld heimiluðu hernum að skjóta á hvern þann sem tók þátt í átökum. Iftikhar Chaudhry, dómarinn sem var rekinn, ætlaði sér að ávarpa stuðningsmenn sína á laugardaginn en herinn kom í veg fyrir að hann kæmist til Karachi með því að loka vegum inn í borgina. Musharraf neitaði því á laugardaginn að lýsa yfir neyðarástandi og skoraði á landsmenn að sameinast og stöðva ofbeldið.
Erlent Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi við Apavatn Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Fleiri fréttir Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Sjá meira