Rice: Ekkert kalt stríð í uppsiglingu 14. maí 2007 19:45
Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafnar því að nýtt kalt stríð sé í uppsiglingu en hún kom til Rússlands í dag. Rússar eru uggandi yfir uppsetningu bandarísks eldflaugavarnakerfis í Póllandi sem þeir telja að sé beint gegn sér. Uppsetning eldflaugakerfisins umdeilda hefur staðið fyrir dyrum í nokkurn tíma en Bandaríkjamenn segja að tilgangur þess sé að verjast árásum langdrægra eldflauga úr Mið-Austurlöndum, sérstaklega frá Íran. Hugmyndin er að koma upp öflugri ratsjárstöð í Tékklandi sem reiknar út feril slíkra flauga og skotpöllum í Póllandi þaðan sem flaugunum verður svo grandað. Formlegar viðræður Bandaríkjamanna og Pólverja um þetta hófust í dag. Um svipað leyti lenti Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Moskvu en á morgun mun hún funda með þeim Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Sergei Lavrov utanríkisráðherra. Uppsetning áðurnefnd eldflaugakerfis er mikill þyrnir í augum Rússa enda telja þeir því ekki síður beint gegn sér en Írönum. Þetta er ekki eina ágreiningsmál Rússa og Bandaríkjamanna um þessar mundir, þeir síðarnefndu hafa til dæmis gagnrýnt framgöngu ráðsherranna í Kreml gegn þeim sem gagnrýnd hafa frammistöðu þeirra. Í samtölum við fjölmiðla í dag vísaði Rice því á bug að nýtt kalt stríð væri að bresta á eins og sumir stjórnmálaskýrendur fullyrða en viðurkenndi þó að samskipti ríkjanna væru verulega stirð um þessar mundir.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira