Herinn settur í viðbragðsstöðu 26. maí 2007 19:15
Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, setti hersveitir sínar í viðbragðsstöðu í dag og skipaði þeim að halda til höfuðborgarinnar Kænugarðs. Sáttaumleitanir á milli þeirra Viktors Janukovits forsætisráðherra hafa engan árangur borið. Stjórnmálaástandið í Úkraínu hefur verið afar ótryggt undanfarnar vikur eftir að Jústsjenkó forseti leysti upp þingið í apríl þar sem erkióvinur hans Viktor Janukovits forsætisráðherra hafði töglin og hagldirnar. Nú virðist það komið að suðupunkti. Segja má að atburðarás síðustu klukkustunda hafi hafist í gær þegar Jústjenkó tók stjórn hersveita innanríkisráðuneytisins í sínar hendur, þvert á stjórnarskrá landsins að mati forsætisráðherrans. Degi áður hafði forsetinn rekið ríkissaksóknara landsins úr embætti. Jústsjenkó og Janukovits sátu á rökstólum í alla nótt og rifust um hvenær halda skyldi aðrar þingkosningar. Þeir funduðu aftur í dag en án nokkurs árangurs. Stuðningsmenn þeirra beggja hafa mótmælt á götum úti undanfarna daga. Því skipaði Jústsjenkó áðurnefndu herliði innanríkisráðuneytisins skömmu áður en fundur þeirra Janukovits hófst að halda til höfuðborgarinnar og vera þar í viðbragðsstöðu ef ástandið færi úr böndunum. Í fyrstu var óttast að valdarán væri í uppsiglingu en talsmaður öryggisráðs landsins lýsti því yfir síðdegis að herliðið hefði einungis verið kallað til í öryggisskyni.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira