Eiður ætlar að berjast fyrir sæti sínu 25. júní 2007 11:01 NordicPhotos/GettyImages
Eiður Smári Guðjohnsen segist ætla að halda áfram að berjast fyrir sæti sínu í liði Barcelona þó félagið sé við það að ganga frá samningi við framherjann Thierry Henry. Eiður segist ekki hafa heyrt neitt frá forráðamönnum félagsins. "Ég veit að mikið er skrifað um að ég sé á förum frá Barcelona en ég hef ekki talað við neinn og vonast til að halda áfram hérna," sagði Eiður Smári í samtali við Marca í dag. Búist er við því að framherjinn Javier Saviola fari frá félaginu í sumar, en þar er fyrir úrvalslið framherja eins og allir þekkja. "Það voru miklar væntingar gerðar til mín þegar ég kom og það er eðlilegt að fólk ætlist til meira af manni þegar maður skorar ekki mikið. Ég ætlast sjálfur til þess að fá meira frá mér. Ég mun hinsvegar verða betur í stakk búinn til að standa mig vel á næsta tímabili þar sem ég hef þá eins árs reynslu af því að spila hér á Spáni," sagði Eiður og ætlar að halda áfram ótrauður. "Ég þarf bara að einbeita mér að því að bæta mig sem leikmaður og ég veit að þá verður auðveldara fyrir mig að fá fólk á mitt band. Það er hinsvegar ljóst að það verður mikil pressa á okkur á næstu leiktíð af því við unnum engan titil í ár en ég vil vera hér áfram," sagði Eiður Smári.
Spænski boltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Allegri ráðinn þjálfari Napoli Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Sjá meira