Fjórveldin funda um framtíð Mið-Austurlanda Jónas Haraldsson skrifar 26. júní 2007 06:54 MYND/AFP
Málamiðlunarkvartettinn svokallaði ætlar sér að hittast í Jerúsalem til þess að meta ástandið á svæðinu. Kvartettinn samanstendur af Evrópusambandinu, Rússlandi, Sameinuðu þjóðunum og Bandaríkjunum. Fulltrúar hans hafa ekki hist eftir að Hamas samtökin tóku völdin á Gaza svæðinu. Almennt er búist við því að rætt verði um hvort að skipa eigi Tony Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, sem sérstakan erindreka hópsins í Mið-Austurlöndum. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur þegar lýst yfir stuðningi við þá hugmynd. Rússar hafa ekki tekið jafn vel í hugmyndina en ekki er talið líklegt að þeir beiti sér gegn henni. Ísraelar eru jákvæðir í garð hans en Palestínumenn efast meira. Blair hefur oft sagt að hann vilji beita sér fyrir friðarsamkomulagi á milli Ísraels og Palestínu. MYND/AFPHamas samtökin ítrekuðu í gær að þau vildu viðræður við Fatah um framtíð Gaza og Vesturbakkans. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu og leiðtogi Fatah hreyfingarinnar, hefur hafnað þeirri beiðni alfarið. Á sama tíma vinnur alþjóðasamfélagið að því að einangra Hamas og aðstoða Fatah. Ehud Olmert, forsætiráðherra Ísraels, sagði í gærkvöldi að stjórn hans væri tilbúin að leysa úr haldi 250 meðlimi Fatah hreyfingarinnar. Ummæli Olmert komu á leiðtogafundi í Egyptalandi sem hófst í gær. Þar fundar Abbas með forsætiráðherra Ísraels, forseta Egyptalands og konungi Jórdaníu. Fundurinn á að sýna fram á samstöðu með málstað Abbas.
Erlent Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Sjá meira