Tveir læknar í Ástralíu handteknir Guðjón Helgason skrifar 3. júlí 2007 12:30
Tveir læknar voru í nótt og í morgun hnepptir í varðhald í Ástralíu í tengslum við rannsókn á sprengjutilræðunum á Bretlandseyjum um helgina. Sjö til viðbótar eru í haldi í Bretlandi - fimm þeirra eru sagðir læknar. Rannsóknin á hryðjuverkaárásinni á Glasgow-flugvelli á laugardaginn og bílsprengjunum sem fundust í Lundúnum degi áður vindur enn upp á sig og teygir nú anga sína allt til Ástralíu. Mohammed Haneef, 27 ára gamall Indverskur læknir var handtekinn á flugvellinum í Brisbane þar sem hann var á leið úr landi - sagður með miða aðra leið til Indlands. Hann hefur starfað sem læknir á sjúkrahúsi í Queensland síðan í september í fyrra. Leit var gerð í húsi hans og segja vitni að lögregla hafi borið fjölmarga muni út af heimili Haneefs, þar á meðal tölvu. Í framhaldi af því var annar læknir handtekinn og færður til yfirheyrslu í morgun en sá mun hafa starfað um tíma sem læknir í Liverpool en var nú staddur í Ástralíu. Nafn hans hefur ekki verið gefið upp. Lögregla leggur áherslu á að mennirnir hafi ekki verið ákærðir. Sjö til viðbótar eru í haldi lögreglu á Englandi og í Skotlandi vegna málsins. Breska blaðið Independent segir í morgun að fimm þeirra séu læknar og til viðbótar hafi verið leitað á heimili þess sjötta sem hefur þó ekki verið hnepptur í gæsluvarðhald. Viðbúnaður er enn mikill á Bretlandseyjum vegna málsins og sprengdi lögregla tvær grunsamlegar bifreiðar fyrir utan mosku í Glasgow í morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira