Verksviði SÞ í Írak breytt Guðjón Helgason skrifar 10. ágúst 2007 18:45
Verksvið Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur verið víkkað að tillögu Breta og Bandaríkjamanna. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna eru andvígir því að þurfa að snúa aftur til Íraks en þaðan voru þeir flestir kallaðir eftir mannskæða sprengjuárás 2003. Tillagan var samþykkt samhljóða á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Samkvæmt henni er umboð þeirra starfsmanna Sameinuðu þjóðanna sem fyrir eru í Írak framlengt í ár til viðbótar og fleiri verk færð á þeirra borð. Starfsmenn verða níutíu og fimm en eru nú sextíu og fimm. Fulltrúum samtakanna er heimilað að hjálpa íröskum stjórnvöldum þegar kemur að efnahags- og mannréttindamálum, framkvæmd kosninga, stjórnarskrárgerð og meðferð flóttamanna. Þeir geta einnig aðstoðað við að koma á viðræðum milli Íraka og fulltrúa nágrannaríkja um landamæravörslu, orkumál og flóttamann. Þær viðræður geta síðan farið fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og með vernd þeirra. Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagnaði niðurstöðunni og sagði samtökin vilja vinna náið með Írökum að þróun mála þar í landi. Ekki eru þó starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sáttir við þessa ákvörðun. Flestir þeirra voru kallaðir heim frá Írak árið 2003 þegar æðsti sendifulltrúi samtakanna týndi lífi í sprengjuárás á höfuðstöðvarnar í Bagdad. Sumir háttsettir fulltrúar Sameinuðu þjóðanna vilja kalla alla starfsmenn þeirra heim frá Írak þar til hægt verði að tryggja öryggi þeirra og almennra borgara betur. Óttast margir þeirra að hersveitir Bandaríkjamanna geti ekki varið starfsfólkið svo vel sé.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira