Ísland ekki lengur í alfaraleið Guðjón Helgason skrifar 15. september 2007 18:30
Ísland verður síður í alfaraleið í sjóflutningum þegar Norð-vestur siglingaleiðin er að verða greiðfær skipum. Þetta segir íslenskur skipulagsfræðingur og segir að bráðunin íss á svæðinu sé töluvert á undan áætlun. Norð vestur leiðin hefur verið vörðuð ísjökum árið um kring og því illfær. Á nýjum gervihnattamyndum Evrópsku geimferðastofnunarinnar má sjá að ísinn hefur hopað töluvert á siglingaleiðinni - sérfræðingar segja bráðnunina þrjátíu árum á undan áætlun. Ísinn nái nú aðeins yfir þriggja milljóna ferkílómetra svæði. Síðustu tíu árin hafi ís að meðaltali hopað á um hundrað þúsund ferkílómetra svæði á ári - um milljón ferkílómetra á ári sé nú að ræða. Hraðari hnatthlýnun sé um að ræða. Í bók sinni How the World Will Change with Global Warming spáir Trausti Valsson, skipulagsfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, að Ísland yrði í þjóðleið sjóflutninga milli Kyrrahafs og Atlantshafs um leið og ís minnkaði í Norður-Íshafi. Fréttir dagsins breyti því. Trausti segir að búið sé að leggja út í miklar rannsóknir sem miði að því að hér á Íslandi geti risið uppskipunarhöfn. Staða Íslands sé góð miðað við að flutningar fari beint yfir Norðurpólinn - þá sé Ísland mjög á leiðinni til Bandaríkjanna og Evrópu - nánast á miðpunkti. En fari Norð-vestur siglingaleiðin að vera svona opin áfram þá sé það orðið krókur að fara austur fyrir Grænland og til Íslands. Norð-vestur siglingaleiðin fræga verður í framtíðinni uppspretta deilna ef að líkum lætur. Kanadamenn segjast geta lokað fyrir ferð skipa en því hafna Evrópusambandið og Bandaríkjamenn - um alþjóðlegt siglingasvæði sé að ræða sem allir geti farið um.
Erlent Fréttir Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira