Körfubolti

Helena með frábæran leik í Bandaríkjunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir átti frábæran leik fyrir TCU í gær.
Helena Sverrisdóttir átti frábæran leik fyrir TCU í gær. Mynd/TCU/Keith Robinson

Helena Sverrisdóttir bætti persónulegt met í gærkvöldi er hún skoraði sautján stig í sigri TCU í bandaríska háskólaboltanum.

TCU vann frábæran sigur á Oklahoma State sem hafði unnið alla leiki sína á tímabilinu fyrir leikinn. Sigurinn var þar að auki gríðarlega öruggur en TCU vann með samtals 34 stiga mun, 97-63.

Helena skoraði sem fyrr segir sautján stig í leiknum en hún nýtti sex af níu skotum sínum utan af velli, þar af eitt af þrjú þriggja stiga skotum sínum. Hún nýtti þar að auki öll fjögur vítaköstin sín, tók sex fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og stal tveimur boltum. Hún tapaði einnig tveimur boltum en hún lék í 28 mínútur í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×