Allar líkur eru á því að Frank Lampard verði með Chelsea gegn Liverpool er liðin mætast í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn.
Lampard lék ekki með Chelsea gegn Manchester United á laugardaginn þar sem að móðir hans, Pat, lést vegna lungnabólgu í síðustu viku.
Hann mun hins vegar hafa æft með liðinu í gær og er búist við því að hann verði með leikmannahópnum í dag.
Fyrri leik Liverpool og Chelsea lauk með 1-1 jafntefli í síðustu viku eftir að John Arne Riise skoraði sjálfsmark á lokamínútu leiksins.
Fernando Torres verður væntanlega í byrjunarliði Liverpool en hann hvíldi er liðið gerði jafntefli við Birmingham um helgina.