Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði að sínir menn hefðu átt sigurinn skilið í kvöld.
„Við vorum frábærir í fyrri hálfleik og hefðum getað náð tökum á leiknum en þá skoruðu þeir heppnismark," sagði Ferguson. „Þeir voru svo betri í síðari hálfleik. En ég er ánægður fyrir hönd allra. Þetta er frábær árangur og eigum við þetta skilið."
„Þetta er fyrsta vítaspyrnukeppnin sem ég vinn í stórleik sem þessum og ekki ólíklegt að þessi leikur hafi verið í höndum örlaganna."
Ferguson: Áttum þetta skilið
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mest lesið

Ronaldo segir þessum kafla lokið
Fótbolti


Niðurbrotinn Klopp í sjokki
Enski boltinn

Þeir bestu (4. sæti): Sigurvegarinn
Íslenski boltinn






Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur
Körfubolti